2014-04-30 18:34:46 CEST

2014-04-30 18:35:47 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Ársreikningur

Afkoma á fyrsta ársfjórðungi í samræmi við væntingar stjórnenda


  -- Tap eftir skatta nam 26,7 milljónum USD samanborið við 18,3 milljónir USD á
     fyrsta ársfjórðungi 2013.
  -- EBITDA var neikvæð um 13,3 milljónir USD samanborið við 8,3 milljónir USD á
     fyrsta ársfjórðungi 2013.
  -- Kostnaður vegna aukins umfangs á háannatíma sem að miklu leyti gjaldfærist
     á fyrsta ársfjórðungi skýrir lækkun á EBITDA á milli ára.
  -- Heildartekjur jukust um 11%.
  -- Eiginfjárhlutfall var 32% í lok mars.
  -- Handbært fé frá rekstri 121,4 milljónir USD samanborið við 78,5 milljónir
     USD árið áður.



Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

 „Afkoma á fyrsta ársfjórðungi er í takt við væntingar stjórnenda félagsins.
Áætlanir ársins gerðu ráð fyrir neikvæðri afkomu á fjórðungnum og að hún yrði
lakari en var á sama tímabili á síðasta ári.  Skýrist það meðal annars af því
að kostnaður tengdur auknu umfangi í starfsemi félagsins á háannatíma
gjaldfærist að miklu leyti á fyrsta ársfjórðungi. Má þar nefna kostnað vegna
auglýsinga og markaðssóknar, innleiðingu flugvéla og kostnað vegna bókana og
umboðslauna sem tengjast háönn. EBITDA var neikvæð um 13,3 milljónir USD og
lækkaði um tæpar 5,0 milljónir USD samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta
árs. 

Heildartekjur námu 191,3 milljónum USD á fjórðungnum og jukust um 11% á milli
ára.  Aukning farþegatekna í millilandaflugi varð mest á
N-Atlantshafsmarkaðinum, en töluverð aukning varð einnig á ferðamannamarkaðinum
til Íslands.  Leiguflugs- og fraktstarfsemi félagsins gekk vel og jókst arðsemi
þessarar starfsemi á milli ára.  Rekstur annarra dótturfélaga samstæðunnar gekk
einnig vel og var í takt við áætlanir. 

Horfur í rekstri Icelandair Group fyrir árið 2014 eru góðar.  Gert er ráð fyrir
metfjölda ferðamanna til Íslands á árinu sem mun hafa jákvæð áhrif á alla
ferðaþjónustu á Íslandi.  Félagið stendur þó frammi fyrir nokkurri óvissu þar
sem Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur boðað til ótímabundins
yfirvinnubanns og verkfalls í maí mánuði. Einnig er ósamið við flugfreyjur og
flugvirkja.  Það er von stjórnenda Icelandair Group að samningar við þessar
þrjár stéttir takist fljótlega svo ekki komi til röskunar á starfsemi
félagsins.  Afkomuspá félagsins stendur óbreytt og er gert ráð fyrir að EBITDA
á árinu 2014 muni nema 145-150 milljónum USD.“ 



Frekari upplýsingar veita

  -- Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
  -- Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími:
     665-8801