2012-09-26 18:51:48 CEST

2012-09-26 18:52:49 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Aðalmiðlarakerfi og viðskiptavakt með íbúðabréf


Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að bjóða aðilum Nasdaq OMX á Íslandi að gerast
aðilar að samningum í tengslum við aðalmiðlarakerfi og viðskiptavakt með
íbúðabréf. 

Stefnt er að því að aðilar að Nasdaq OMX, sem reiðubúnir eru að gangast undir
þær kröfur sem samningurinn gerir og hyggjast gerast viðskiptavakar íbúðabréfa
þurfi að undirrita samninginn milli kl. 16:00 og 17:00, föstudaginn 28.
september 2012 hjá Íbúðalánasjóði, Borgartúni 21, 105 Reykjavík. 

Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi í tengslum við viðskiptavakt á
eftirmarkaði.