2012-09-26 19:30:13 CEST

2012-09-26 19:31:14 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Reginn semur um endurfjármögnun Egilshallar


Reginn hefur lokið fyrsta áfanga  í endurfjármögnun félagsins. Félagið hefur
tryggt endurfjármögnun Egilshallar að fjárhæð 5,5 milljörðum króna.
Fjármögnunin er verðtryggð til  10 ára og ber 3,85% fasta vexti. Um er að ræða
eignatryggða fjármögnun og er lánveitandi REG 1 fagfjárfestasjóður í rekstri
Stefnis hf. Þegar hefur verið samið um helstu skilmála með fyrirvara um
áreiðanleikakönnun. Áætlaður ávinningur félagsins vegna lægri vaxtakjara er um
60 m.kr. á ársgrundvelli. 

Reginn hf. sem öflugt skráð fasteignafélag ásamt tryggum leigusamningum við
leigutaka á borð við Reykjavíkurborg eru grundvöllur þeirra hagstæðu kjara sem
félagið hefur nú tryggt sér 

Egilshöllin er ein glæsilegasta miðstöð íþrótta og afþreyingar á Íslandi. Þar
má m.a. finna eitt vinsælasta kvikmyndahús landsins, keiluhöll með tilheyrandi
veitingastöðum, innanhúss knattspyrnuvöll, fullbúið skautasvell, heilsurækt og
skotæfingasal. Fyrir utan húsið eru fjölmargir gervigrasvellir og allt um kring
frábær svæði til útivistar. Egilshöll er í heildina 30.696 m2. 

Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast
rekstur á atvinnuhúsnæði. Fasteignasafn Regins telur 30 fasteignir og er
heildarfermetrafjöldi fasteignasafnsins um 153 þúsund fermetrar. 

Stefnir hf. er stærsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins með um 340 milljarða
króna í virkri stýringu. Stefnir hefur meðal annars sérhæft sig á sviði
eignatryggðrar fjármögnunar og unnið fjölmörg verkefni á því sviði. 

Nánari upplýsingar veitir:
Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

Sími: 512 8900 / 899 6262