|
|||
![]() |
|||
2016-04-20 18:15:24 CEST 2016-04-20 18:15:24 CEST REGLERAD INFORMATION Reginn hf. - HluthafafundirFramboð til stjórnar Regins hf. og krafa um margfeldiskosningu á aðalfundi 25. apríl 2016Aðalfundur Regins hf. verður haldinn 25. apríl 2016 í Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi, í Björtuloftum, Austurbakka 2, 101 Reykjavík, klukkan 16:00. Framboðsfrestur til stjórnar Regins hf. rann út þann 18. apríl sl. Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins: Í framboði til aðalstjórnar eru: Albert Þór Jónsson, kt. 180562-3119 Benedikt K. Kristjánsson, kt. 190952-4879 Bryndís Hrafnkelsdóttir, kt.070864-7899 Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, kt. 180577-4249 Tómas Kristjánsson, kt. 151165-3389 Vignir Óskarsson, kt. 310877-5819 Í framboði til varastjórnar eru: Finnur Reyr Stefánsson, kt. 141069-3659 Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, kt. 100369-5839 Er það mat stjórnar að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Frambjóðendur til varastjórnar eru sjálfkjörnir. Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi. Krafa um margfeldiskosningu Stjórn Regins hf. hefur borist krafa frá hluthafa um að beitt verði margfeldiskosningu til kosningar stjórnar Regins hf. sem fram fer á aðalfundi félagsins þann 25. apríl næstkomandi. Umræddar kröfur bárust stjórn innan tilskilins frests og barst frá hluthafa sem hafa yfir að ráða meira en 1/10 hlutafjár sbr. 23. gr. samþykkta félagsins og 7. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Margfeldiskosningu verður því beitt við stjórnarkjörið. Margfeldiskosning fer fram með eftirfarandi hætti sbr. c. lið 6. mgr. 63. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Kosið skal á milli einstaklinga. Gildi hvers atkvæðis skal margfaldað með fjölda þeirra stjórnarmanna sem kjósa skal og má hluthafi skipta atkvæðamagni sínu, þannig reiknuðu, í hverjum þeim hlutföllum, sem hann sjálfur kýs, á jafnmarga menn og kjósa skal eða færri. Ef ekki er á atkvæðaseðli getið skiptingar atkvæða á milli þeirra sem þau eru greidd skal þeim skipt að jöfnu. Önnur fundargögn tengd aðalfundi má nálgast á vef félagsins www.reginn.is/fjarfestar. Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð: livestream.com/accounts/11153656/events/5237733/player Kópavogur, 20. apríl 2016 Stjórn Regins hf. |
|||
|