2016-04-20 18:30:22 CEST

2016-04-20 18:30:22 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Landsvirkjun - Hluthafafundir

Stjórn Landsvirkjunar endurkjörin á aðalfundi


Á aðalfundi Landsvirkjunar, sem haldinn var í dag, var samþykkt tillaga
fjármála- og efnahagsráðherra um kjör aðalmanna og varamanna í stjórn
Landsvirkjunar. 

Á aðalfundinum var jafnframt samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til
eigenda að fjárhæð 1,5 milljarðar króna fyrir árið 2015. 

Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar voru endurkjörnir: Jónas Þór Guðmundsson,
hæstaréttarlögmaður, Helgi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður, Jón Björn
Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, Þórunn Sveinbjarnardóttir,
framkvæmdastýra Samfylkingarinnar og Álfheiður Ingadóttir, líffræðingur. 

Varamenn í stjórn Landsvirkjunar voru endurkjörnir: Páley Borgþórsdóttir,
Teitur Björn Einarsson, Ásta Björg Pálmadóttir, Skúli Helgason og Steinþór
Heiðarsson. 

Sjá nánar: www.landsvirkjun.is/fyrirtaekid/stjorn

Aðalfundurinn staðfesti skýrslu stjórnar og samstæðureikning fyrir liðið
reikningsár. 

Sjá nánar: www.landsvirkjun.is/Media/arsreikningur-lv-2015-samstaeda.pdf

Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn stjórnarformaður

Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn
formaður stjórnar og Jón Björn Hákonarson varaformaður.