2015-11-10 23:45:00 CET

2015-11-10 23:45:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
HS Orka hf. - Ársreikningur

HS Orka hf. birtir árshlutareikning fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2015


Stjórn HS Orku hf. samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins
fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2015. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi
við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum.
Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is 

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

Rekstartekjur fyrirtækisins hækkuðu um 1,4% og námu 5.388 milljónum á
tímabilinu, samanborið við 5.311 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. Lækkun
á virði afleiða (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) nam
2.156 m.kr. á tímabilinu en var neikvæð um 177 m.kr. á fyrstu níu mánuðum 2014.
Gengishagnaður var 206 m.kr. á tímabilinu, samanborið við gengishagnað upp 112
m.kr. á sama tímabili 2014. 

Hagnaður tímabilsins af reglulegri starfsemi nam 290 m.kr. samanborið við 1.198
m.kr. hagnað á sama tímabili 2014. Heildarafkoma var hins vegar hagnaður upp á
172 m.kr. samanborið við 1.142 m.kr. hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins 2014. 

EBITDA jókst um 7% á milli tímabila og er alls 2.100 m.kr. á fyrstu níu mánuðum
ársins 2015 en var 1.963 m.kr. á sama tímabili 2014. 

Rekstur HS Orku hf. gengur því vel þrátt fyrir neikvæða afkomu af reiknuðum
fjármagnsliðum. Tekjur jukust á milli ára um 77 m.kr. en rekstrarkostnaður
lækkaði um 28 m.kr.. Tekjur hafa aukist bæði frá smásölumarkaði og frá
stórnotendum.  Rekstrarkostnaður orkuvera hefur aukist nokkuð, orkukaup hafa
aukist talsvert og flutningskostnaður hækkað sömuleiðis. 

Eiginfjárhlutfall 30. september 2015 var 59,7% sem er sama hlutfall og var í
árslok 2014. 

Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hf. í síma 520
9300 / 855 9301.