|
|||
2012-04-12 13:45:00 CEST 2012-04-12 13:45:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0716 OG RIKV 12 1015Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0716 og RIKV 12 1015 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 12 0716: Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.980 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 850 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,198 (flatir vextir 3,20%). RIKV 12 1015: Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.850 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 1.250 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,261 (flatir vextir 3,50%). |
|||
|