2014-04-01 17:55:21 CEST

2014-04-01 17:56:22 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Fyrirtækjafréttir

Tryggingamiðstöðin hf. - Endurnýjun samnings um viðskiptavakt.


Tryggingamiðstöðin hf. og MP banki hf. hafa endurnýjað samning um
viðskiptavakt.  Samningurinn er efnislega óbreyttur frá fyrri samningi á milli
félaganna, en gildistími hans er nú ótímabundinn með gagnkvæmum 14 daga
uppsagnarfresti. 

Fjárhæð kaup- og sölutilboða MP banka hf. skal vera að lágmarki 500.000 hlutir
á gengi sem MP banki hf. ákveður í hvert skipti.  MP banka hf. er heimilt en
ekki skylt að bjóða til kaups og/eða sölu fleiri hluti en að framan greinir. 
Verði tilboðum MP banka hf. tekið skal MP banki hf. setja fram annað tilboð
innan 10 mínútna frá síðustu viðskiptum.  Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum
skal vera 1,5%.  Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern sem MP banki hf. er
skuldbundinn til að eiga viðskipti skal samsvara 81.000.000 kr. að
markaðsvirði.