2015-07-21 12:22:07 CEST

2015-07-21 12:22:55 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. : Íslandsbanki í fjárfestingarflokk samkvæmt mati S&P


Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's tilkynnti í dag um hækkun á
lánshæfismati Íslandsbanka í BBB-/A-3 með stöðugum horfum.

Hækkunin endurspeglar það mat S&P að rekstrarskilyrði Íslandsbanka, sem og
annarra íslenskra viðskiptabanka, fari batnandi.

Að mati S&P endurspeglar lánshæfismat Íslandsbanka sterkt eiginfjárhlutfall og
rekstrarafkomu, og sterka lausafjárstöðu.

Hækkun lánshæfismats var tekin í kjölfar skoðunar S&P á íslensku bankakerfi og
byggir hún á mati þeirra um að dregið hafi úr efnahagslegri áhættu í íslenska
hagkerfinu og væntingum um bætt lánshæfi og framtíðarstöðugleika. S&P gerir ráð
fyrir takmörkuðum viðbótar áhrifum fjármálakreppunnar 2008 á lánshæfi bankans.
S&P leit einnig til hækkunar lánshæfismats íslenska ríkisins sem merki um aukið
jafnvægi og bætt skilyrði bankakerfisins.


Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:"Þessi niðurstaða er í takt við væntingar okkar í ljósi hækkunar á lánshæfismati
íslenska ríkisins. Það er ánægjulegt að fá viðurkenningu á þeim árangri sem
hefur náðst, bæði í íslensku efnahagslífi sem og í endurskipulagningu lánasafns
bankans. Lánshæfismat í fjárfestingarflokk frá Fitch og nú Standard & Poor's mun
hafa jákvæð áhrif á aðgengi okkar að erlendu fjármagni og gera okkur kleift
þjónusta viðskiptavini okkar enn betur og uppfylla framtíðarsýn bankans um að
vera númer 1 í þjónustu."


Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengsl - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
    440 4752.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, pr@islandsbanki.is og í síma 844 3925.



[HUG#1940130]