2011-04-28 14:41:35 CEST

2011-04-28 14:42:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Ríkisútvarpið - Ársreikningur

Samandreginn árshlutareikningur RÚV 01.09.2010 - 28.02.2011


Jákvæð niðurstaða

Hagnaður af rekstri RÚV á reikningstímabilinu 1. september 2010 til 28. febrúar
2011 var 257 m.kr. Samkvæmt efnahagsreikningi var verðmæti eigna í lok
tímabilsins 5.920 m.kr., skuldir námu 4.942 m.kr. og eigið fé 978 m.kr.
Eiginfjárhlutfall félagsins var 16,5%. 



Afkoma félagsins er um 52 m.kr. betri en áætlun rekstrarársins. Hún gerði ráð
fyrir um 205 m.kr. hagnaði fyrri hluta rekstrarársins en um 200 m.kr. tapi
seinni helming þess, þannig að rekstur ársins í heild yrði í jafnvægi. Þessi
mikli munur á fyrri og seinni hluta rekstrarársins skýrist af tvennu. Annars
vegar er það eðli starfseminnar að afkoman sé betri fyrstu sex mánuði
rekstrarársins þar sem stærstu tekjumánuðir í auglýsingum eru á því tímabili.
Hins vegar er munurinn milli árshluta nú óvenjumikill vegna þess að
þjónustutekjur lækkuðu um rúmlega 21 m.kr. á mánuði frá og með janúar 2011. Þær
verða því 85 m.kr. lægri á seinnihluta rekstrarársins sem ýkir venjubundna
sveiflu milli árshlutanna. 

Árshlutareikningurinn er í viðhengi.