2015-09-01 17:50:15 CEST

2015-09-01 17:51:16 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Fyrirtækjafréttir

Reitir kaupa Skútuvog 3


Reitir hafa ákveðið að ganga til samninga við Sjöstjörnuna ehf. um kaup Reita á
fasteigninni að Skútuvogi 3 í Reykjavík. Kaupverðið er 670 milljónir kr. og mun
eignin afhendast þann 1. október næstkomandi. Fyrirvarar eru gerðir um að
fallið verði frá forkaupsrétti þriðja aðila að fasteigninni, og um samþykki
stjórnar Reita fyrir kaupunum. Um er að ræða vandað 3.753 fm. vöruhús sem hýsir
starfsemi heildsölunnar Eggerts Kristjánssonar ehf. Gildandi leigusamningur um
alla fasteignina er til ársins 2020 og nema leigutekjur af eigninni samkvæmt
honum rúmlega 67 milljónum kr. á ársgrundvelli. Leiða kaupin til þess að
áætlaður rekstrarhagnaður (NOI) Reita hækkar um rúmlega 50 milljónir kr. á
ársgrundvelli en áhrif kaupanna á NOI fyrir árið 2015 eru hins vegar óveruleg. 

Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660
3320, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.