|
|||
![]() |
|||
2010-05-26 11:09:06 CEST 2010-05-26 11:10:06 CEST SÄÄNNELTY TIETO Lánasjóður sveitarfélaga - FyrirtækjafréttirUndirritun samninga í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðsins og viðskiptavakt á eftirmarkaðiÍ gær 25. maí, var skrifað undir samninga hjá Lánasjóði sveitarfélaga í tengslum við útgáfu skuldabréfa lánasjóðsins og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Markmiðið með samningnum er að styrkja aðgang lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði. Frá 26. maí 2010 hafa fjórar fjármálastofnanir heimild til að kalla sig:"Aðalmiðlara með skuldabréf lánasjóðsins". Þær eru: Arion banki hf., Íslandsbanki hf., MP banki hf. og Saga Capital fjárfestingabanki hf. Aðalmiðlarar/Viðskiptavakar hafa einir aðgang að útboðum lánasjóðs sveitarfélaga. Aðalmiðlari/Viðskiptavaki skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum skuldabréfa lánasjóðsins fyrir a.m.k. 100 milljónir króna. Aðalmiðlarar/Viðskiptavakar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem lánasjóðurinn veitir. Aðalmiðlari/viðskiptavaki er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir LSS24 og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki 50 m.kr. að nafnvirði í Nasdaq OMX á Íslandi. Aðalmiðlari/viðskiptavaki skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningunum. Aðalmiðlara/viðskiptavaka er skylt að endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 200 m.kr. að nafnvirði er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup-og sölutilboða. Meðfylgjandi er sýnishorn af samningi þar sem fram koma ýtarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur samningsaðila. Nánari upplýsingar f.h. Lánasjóðs sveitarfélaga veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: +354 515 4947 egill@lanasjodur.is |
|||
|