|
|||
2009-10-07 11:26:19 CEST 2009-10-07 11:27:19 CEST REGULATED INFORMATION Eik fasteignafélag hf. - FyrirtækjafréttirSamkomulag milli Eikar fasteignafélags, Húsasmiðjunnar og LandsbankansÍ skýrslu stjórnar í árshlutareikningi Eikar fasteignafélags, sem birtur var í ágúst síðastliðnum, kom fram að Húsasmiðjan, sem er stærsti leigutaki félagsins, hafi óskað eftir viðræðum um leigulækkun í tengslum við endurfjármögnun Húsasmiðjunnar. Samkomulag hefur náðst milli Eikar fasteignafélags, Húsasmiðjunnar og Landsbankans þess eðlis að Landsbankinn breytir hluta af kröfum sínum á Húsasmiðjuna í eigið fé og tryggir þar með áframhaldandi rekstur hennar. Eik fasteignafélag mun hleypa Húsasmiðjunni úr einum leigusamning þar sem enginn rekstur er. Einnig mun félagið veita Húsasmiðjunni tímabundna leigulækkun sem mun að hluta til vera tengd árangri Húsasmiðjunnar á næstu árum. Áætluð áhrif þess á eigið fé Eikar fasteignafélags eru um tvö hundruð milljón krónur. Frekari upplýsingar veitir Garðar Hannes Friðjónsson forstjóri Eikar fasteignafélags í síma 590-2200. |
|||
|