2008-08-19 17:36:02 CEST

2008-08-19 17:37:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landic Property hf. - Fyrirtækjafréttir

- Landic Property yfirtekur á ný eignarhald á Keops Development


Landic Property  hefur rift samningi milli Landic Property og Stones Invests um
söluna á Keops Development (KD).  Landic Property hefur yfirtekið á ný
eignarhald sitt á Keops Development með það fyrir augum að vernda fjárhagslega
hagsmuni sína, verðmæti Keops Development og hagsmuni viðskiptafélaga og
viðskiptabanka félagsins. 

Landic Property hefur uppfyllt allar skyldur sínar samkvæmt kaupsamningi.  Hins
vegar hefur Stones Invest meðal annars ekki staðið við þau ákvæði
kaupsamningsins um að losa Landic Property undan ábyrgðum sínum og að
framfylgja ítarlegri áætlun um sjóðstreymi til að tryggja greiðslur til banka
og þróunaraðila verkefna á vegum Keops Development. 

Það hefur komið í ljóst í dag að  Stones Invest hefur tekið til sín
endurgreiðslur á virðisaukaskatti sem nema rúmlega 22 milljónum danskra króna
og sem hefðu með réttu átt að renna inn á bankareikning Keops Development.
Keops Development og dótturfélög eru án stjórna þar sem stjórnarmeðlimir
skipaðir af Stones Invests hafa sagt af sér sem gerir það að verkum að Keops
Development uppfyllir ekki reglur um stjórn félaga. 

Það er ljóst að ekki er hægt að treysta Stones Invests og félagið getur ekki
staðið við skuldbindingar. Til að koma í veg fyrir frekari rýrnun verðmæta að
völdum Stones Invests hefur Landic Property rift kaupsamningnum og tekið yfir
eignarhald og stjórnun á Keops Development. 
Framkvæmdarstjórn og stjórn Stones Invests hafa með atferli sínu sýnt mikla
vanrækslu gagnvart Landic Property, Keops Development og öllum þeim er hlut
eiga að máli. Landic Property áskilur sér rétt til þess að grípa til hvers kyns
nauðsynlegra lagalegra aðgerða gagnvart Stones Invest og stjórn fyrirtækisins. 

Landic Property hyggst nýta næstu daga til þess að afla sér ítarlegs yfirlits
yfir Keops Development, núverandi starfsemi, verkefni og skuldbindingar og
grípa til viðeigandi ráðstafana til að tryggja að rekstur Keops Development
komist á rétta braut. 

Nánari upplýsingar veitir:
Páll Benediktsson forstöðumaður Samskiptasviðs
Sími: +354 895 6066
PABE@Landicproperty.com