2008-03-14 15:27:45 CET

2008-03-14 15:28:45 CET


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
Nýherji hf. - Fyrirtækjafréttir

- Hlutafjárútboð NÝHERJA 17. - 25. mars 2008


Á aðalfundi Nýherja hf. þann 25. janúar 2008 var samþykkt að breyta samþykktum
félagsins þar sem stjórn félagsins er heimilt að auka hlutafé félagsins um allt
að kr. 65 milljónir sem verði ráðstafað þannig að allt að kr. 25 milljónum
verði ætlað til greiðslu fyrir hlutafé í TM Software hf. og allt að kr. 40
milljónum verði ætlað til sölu til núverandi hluthafa og starfsmanna innan
Nýherjasamstæðunnar. Stjórn félagsins hefur ákveðið að nýta þessa heimild og
auka hlutafé félagsins um kr. 45 milljónir á genginu 22,0. Þar af  verða
15.902.553 hlutir nýttir sem greiðsla til seljenda TM Software hf. og
29.097.447 hlutir ætlaðir til sölu til núverandi hluthafa og starfsmanna
samstæðunnar. 

Hlutafjárútboðið hefst kl. 10:00 mánudaginn 17. mars og stendur til
þriðjudagsins 25. mars kl. 10:00. Niðurstöður útboðsins verða birtar
opinberlega í fréttakerfi Kauphallar Íslands fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 27.
mars. Áskriftarréttur hluthafa verður hlutfallslegur miðað við hlutafjáreign
eins og hún var skráð í hlutaskrá Nýherja hf. í lok dags fimmtudaginn 13. mars
2008. Gjalddagi er 28. mars. 

OMX Nordic Exchange Iceland hf. tekur hlutina til viðskipta eigi síðar en 3.
apríl 2008. 

Hluthöfum er heimilt að skrá sig fyrir færri eða fleiri hlutum en þeir eiga
forkaupsrétt á. Þeim hlutum sem ekki verður ráðstafað í samræmi við
framangreint verður útdeilt í hlutfalli við hlutafjáreign til þeirra sem óska
eftir fleiri hlutum en þeir eiga forkaupsrétt á samkvæmt útboðslýsingu. 

Hverjum og einum starfsmanni samstæðunnar sem eru í starfi 13. mars býðst að
kaupa annað hvort 5.000 eða 10.000 hluti. Sama útboðstímabil er fyrir
starfsmenn og hluthafa. 

Sparisjóður Mýrarsýslu er umsjónaraðili útboðs og má nálgast lýsingu sem hefur
veið birt á heimasíðu sparisjóðsins www.spm.is og á heimasíðu Nýherja
www.nyherji.is. Einnig má nálgast útboðslýsinguna á skrifstofu félagsins og á
skrifstofu sparisjóðsins að Digranesgötu 2, 310 Borgarnesi frá og með 14. - 26.
mars.