|
|||
2009-04-30 17:38:40 CEST 2009-04-30 17:39:48 CEST Milestone ehf. - Fjárhagsdagatal- Birting ársreiknings 2008Samkvæmt 2. mgr. 56. gr., sbr. 57. gr. laga nr. 108/ 2007 um verðbréfaviðskipti er félögum sem aðeins hafa skráð skuldabréf heimilt að birta ekki uppgjör í kauphöll ef lágmarksfjárhæð hvers skuldabréfs er a.m.k. 50.000 EUR að nafnvirði. Þar sem Milestone er eingöngu með skráðan skuldabréfaflokk í Kauphöllinni hefur stjórn félagsins ákveðið að nýta þessa lagaheimild og birta ekki uppgjör félagsins í Kauphöllinni. Fyrir liggur að eiginfjárstaða Milestone er neikvæð og á félagið í viðræðum við kröfuhafa um fjárhagslega endurskipulagningu, sbr. tilkynningu sem birt var í Kauphöllinni þann 19. nóvember 2008. Ársreikningur Milestone verður lagður fyrir aðalfund félagsins. Nánari upplýsingar: Guðmundur Ólason, forstjóri Sími: 414-1800 |
|||
|