2013-02-28 09:25:16 CET

2013-02-28 09:26:27 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Ársreikningur

Islandsbanki hf. : Ársuppgjör 2012


Afkoma Íslandsbanka árið 2012

Yfirlit yfir helstu niðurstöður:

  * Afkoma bankans eftir skatta var jákvæð um 23,4 milljarða árið 2012
    samanborið við 1,9 milljarða árið 2011 en þar gætti áhrifa vegna
    virðisrýrnunar á viðskiptavild í kjölfar yfirtöku Byrs sem olli
    einskiptiskostnaði uppá 17,9 milljarða króna.
  * Hagnaður eftir skatta á fjórða ársfjórðungi var 7,2 milljarðar samanborið
    við 9,5 milljarða tap á fjórða ársfjórðungi 2011.
  * Hagnaður ársins eftir skatta af reglulegri starfsemi var 15,7 milljarðar,
    samanborið við 13,9 milljarða árið 2011.
  * Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 17,2%, samanborið við 1,5% árið 2011.
    Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi var 11,6%, samanborið við 11,0%
    árið 2011.
  * Skattar og gjöld greidd ríkisstofnunum voru 9,3 milljarðar á árinu,
    samanborið við 2,0 milljarða á árið 2011.
  * Heildareignir við árslok námu 823 milljörðum, samanborið við 796 milljarða í
    árslok 2011.
  * Vaxtamunur var 3,9% á árinu, samanborið við 4,5% árið 2011.
  * Frá stofnun bankans hafa um 20.900 einstaklingar og um 3.660 fyrirtæki
    fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum sem nema um 463
    milljörðum króna.
  * Nettó tekjufærsla vegna endurmats lánasafnsins var 6,5 milljarðar árið
    2012, samanborið við 1,3 milljarða gjaldfærslu á sama tímabili fyrir árið
    2011.
  * Heildarinnlán við árslok námu 509 milljörðum, samanborið við 526 milljarða í
    árslok 2011.
  * Eigið fé nam 148 milljörðum í árslok, sem er hækkun um 19,4% frá árslokum
    2011.
  * Fjárhagsstaða Íslandsbanka er traust. Eiginfjárhlutfall var 25,5% í árslok
    2012 samanborið við 22,6% í árslok 2011.

Nánari upplýsingar um afkomu bankans má finna í ítarlegri afkomutilkynningu hér
meðfylgjandi.



Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:"Þá er fyrsta rekstrarári sameinaðs banka lokið. Þess mun ávallt verða minnst í
sögu bankans sem ársins þegar samruna Íslandsbanka og Byrs lauk. Sameiningin jók
markaðshlutdeild bankans verulega og lagði drög að tekju- og samlegðarárhrifum
til framtíðar. Uppgjörið ber þess glögglega merki að  grunnrekstur bankans
heldur áfram að styrkjast, en yfir 75% af rekstrartekjum bankans koma frá vaxta-
og þóknanatekjum.

Við náðum mikilvægum áföngum í enduruppbyggingu íslensks fjármálamarkaðar á
árinu. Íslandsbanki var leiðandi í þeirri vinnu bæði með áframhaldandi útgáfu
sértryggðra skuldabréfa og umsjón með skráningu hlutabréfa Eimskipa og Vodafone
í kauphöll. Enn fremur markaði skuldabréfaútboð bankans fyrir hönd Eikar
fasteignafélags ákveðin tímamót í fyrirtækjafjármögnun. Útboðið var það stærsta
sem einkaaðili hefur ráðist í frá því á árinu 2008. Framundan eru fleiri stór
verkefni á þessu sviði sem munu varða veginn til frekari endurreisnar
fjármálamarkaðarins.

 Við höfum náð miklum árangri við fjárhagslega endurskipulagningu. Stórum málum
lauk á árinu og brátt sér fyrir endann á endurútreikningi ólöglegra
gengistryggðra lána. Íslandsbanki féll frá þremur dómsmálum á árinu til að flýta
endurútreikningi og endurreiknar nú 15.000 lán. Hlutfall lána í
endurskipulagningu hefur því lækkað umtalsvert eða úr 22.6% í 13.7%. Jákvæðir
úrskurðir ESA varðandi þær aðgerðir sem gripið var til 2008 hafa einnig dregið
úr óvissu í rekstri bankans. Þessi atriði ásamt meira lífi á fjármálamarkaði
gefur til að kynna að það séu að verða þáttaskil í rekstri bankans og
starfsumhverfi okkar."

Síðar í dag munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni
Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara
 fyrirspurnum. Fundurinn hefst kl. 16.00 og fer fram á íslensku. Nauðsynlegt að
gestir skrái sig á afkomukynninguna með tölvupósti til:  ir@islandsbanki.is.

Hægt verður að nálgast fundargögn frá kynningunni á
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

 Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir,
    gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 3678.


[HUG#1681929]