|
|||
2008-08-18 17:48:32 CEST 2008-08-18 17:49:32 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirTilkynning um útboð ríkisbréfa - RIKB 09 0612 og RIKB 10 0317Fimmtudaginn 21. ágúst klukkan 14:00 fer fram útboð í tveimur flokkum ríkisbréfa með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 10.000 milljónir króna að nafnverði í RIKB 09 0612 og 5.000 milljónir króna að nafnverði í RIKB 10 0317. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðunum en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 25. ágúst 2008. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka ríkisverðbréfa: Flokkur RIKB 09 0612 Lokagjalddagi 12.06.2009 Útistandandi fjárhæð 29.205 m.kr. Lánstími 9 mán. Flokkur RIKB 10 0317 Lokagjalddagi 17.03.2010 Útistandandi fjárhæð 25.549 m.kr. Lánstími 1,5 ár Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633. |
|||
|