2012-06-08 13:45:34 CEST

2012-06-08 13:46:36 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

NIÐURSTAÐA Í ÚTBOÐI ÓVERÐTRYGGÐA RÍKISBRÉFA RIKB 22 1026


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 22 1026 fór fram hjá Lánamálum ríkisins
kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 22 1026:

Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.650 m.kr. að nafnverði. 7
tilboðum var tekið fyrir 2.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,000 (7,24%
ávöxtunarkröfu). 

Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 12.
júní. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 13. júní 2012.