2016-04-26 19:10:34 CEST

2016-04-26 19:10:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf. lýkur sölu sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn lauk í dag lokuðu útboði á tveimur flokkum sértryggðra
skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 7.660 m. kr. í útboðinu og var
tilboðum tekið fyrir 480 m. kr. 

Seld voru skuldabréf í LBANK CBI 22, verðtryggðum flokki sem skráður er á
Nasdaq Iceland, fyrir 280 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,20%. Áður hefur
Landsbankinn gefið út 14.240 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð
flokksins 14.520 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. 

Seld voru skuldabréf í LBANK CB 19, óverðtryggðum flokki sem skráður er á
Nasdaq Iceland, fyrir 200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,58%. Áður hefur
Landsbankinn gefið út 9.940 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð
flokksins 10.140 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. 

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 3. maí
2016 en Kvika sinnir viðskiptavakt með ofangreinda flokka sértryggðra
skuldabréfa. 

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með
vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari
upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar
bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.