2011-03-21 10:18:51 CET

2011-03-21 10:19:53 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 09 1



Reykjavíkurborg hefur ákveðið að efna til útboðs þann 23. mars 2011 til
stækkunar á skuldabréfaflokki með auðkennið RVK 09 1. 

Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 1000 milljónir króna
að nafnvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka og lækka
útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði.
Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtnarkrafa) mun ákvarða söluverð. 

Heildarstærð flokksins fyrir þetta útboð alls 9.630 mkr. Heimild til stækkunar
á árinu 2011 er 6.300 mkr að nafnvirði. Flokkurinn hefur verið stækkaður um 300
mkr það sem af er árinu 2011. 

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 28. mars 2011

Umsjón með sölu skuldabréfanna hefur Íslandsbanki og MP banki.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:



Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson

Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar

Sími: 693-9321