2014-05-09 13:45:00 CEST

2014-05-09 13:45:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 16 1013 OG RIKB 20 0205


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 16 1013 og RIKB 20 0205 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 16 1013:

Alls bárust 4 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 600 m.kr. að nafnverði. 3
tilboðum var tekið fyrir 500 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,930 (4,68%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 20 0205:

Alls bárust 7 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.400 m.kr. að nafnverði. 7
tilboðum var tekið fyrir 1.400 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,900 (6,26%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 13.
maí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 14. maí 2014.