2013-07-31 16:48:30 CEST

2013-07-31 16:49:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Fyrirtækjafréttir

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboði


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkum LSS150224 og
LSS150434 þann 30. júlí 2013. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 2. ágúst
2013. 

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu
skuldabréfa lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10%
af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til
kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á
samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það
magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. 

Alls bárust tilboð í LSS150224 að nafnvirði ISK 1.425.000.000 á bilinu 2,29% -
2,47%.  Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 555.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 2,30%. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í
LSS150224 fyrir ISK 25.500.000. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS150224
nemur því að nafnvirði ISK 580.500.000 á ávöxtunarkröfunni 2,30%. Útistandandi
fyrir voru ISK 29.884.000.000. Heildarstærð flokksins er nú ISK 30.464.500.000. 

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 660.000.000 á bilinu 2,60% -
2,80%.  Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 410.000.000 á
ávöxtunarkröfunni 2,70%. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í
LSS150434 fyrir ISK 37.000.000. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS150434
nemur því að nafnvirði ISK 447.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,70%. Útistandandi
fyrir voru ISK 10.361.852.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 10.808.852.565. 

Nánari upplýsingar veitir:
Egill Skúli Þórólfsson
Sími: 515 4947
e-mail: egill@lanasjodur.is