2013-07-31 18:11:42 CEST

2013-07-31 18:12:42 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Ársreikningur

Góð afkoma Icelandair Group á öðrum ársfjórðungi


  -- Hagnaður eftir skatta nam 18,5 milljónum USD samanborið við 14,3 milljónir
     USD árið áður.
  -- EBITDA nam 42,9 milljónum USD samanborið við 28,8 milljónir USD árið áður.
  -- Heildartekjur jukust um 13%.
  -- Eiginfjárhlutfall 32% í lok júní.
  -- Handbært fé frá rekstri 106,4 milljónir USD samanborið við 72,2 milljónir
     USD árið áður.



Björgólfur Jóhannsson, forstjóri:

„Afkoma Icelandair Group á öðrum ársfjórðungi var góð og batnaði  á milli ára.
Hagnaður eftir skatta nam 18,5 milljónum USD og jókst um 4,2 milljónir USD
miðað við síðasta ár. Millilandaflugstarfsemi félagsins gengur vel.  Framboð 
var aukið um 17% á milli ára og fjöldi farþega í fjórðungnum nam um 609 þúsund.
Framboðsaukningin var mest á N-Atlantshafinu og á þeim markaði jókst fjöldi
farþega einnig mest eða um 22%. 

Ferðaþjónustan á Íslandi hefur notið góðs af fjölgun ferðmanna til landsins, en
í ár stefnir í metfjölda þeirra er sækja Ísland heim.  Fraktstarfsemi félagsins
hefur einnig gengið vel en aukin áhersla á flutninga með frakt í áætlunarflugi
í stað leiguflugsverkefna hefur skilað góðum árangri. 

Í byrjun árs gáfum við út EBITDA spá fyrir árið 2013 sem nam 115-120 milljónum
USD og var sú spá uppfærð í 122-127 milljónir USD þegar uppgjör fyrsta
ársfjórðungs var birt. Fyrstu sex mánuði ársins hefur reksturinn gengið vel og
ytri aðstæður hafa þróast á hagfelldan hátt fyrir félagið.  Eldsneytisverð
hefur verið lægra en gert var ráð fyrir í spám félagsins og þróun helstu
gjaldmiðla hefur sömuleiðis verið hagfelld ef horft er á forsendur í  spám
félagsins.  Bókunarstaða fyrir seinni helming ársins er góð og miðað við
fyrirliggjandi forsendur er gert ráð fyrir að EBITDA ársins verði 140-145
milljónir USD."