2013-01-09 14:47:28 CET

2013-01-09 14:48:29 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hampiðjan hf. - Company Announcement (is)

Cosmos Trawl, fyrirtæki í 100% eigu Hampiðjunnar, kaupir 80% hlut í rekstri og eignum Nordsötrawl í Thyborön, Danmörku


Cosmos Trawl A/S í Hirtshals, Danmörku hefur keypt 80% hlut í rekstri og eignum
netaverkstæðisins Nordsötrawl sem er starfrækt í Thyborön í Danmörku. 
Kaupverðið, sem er að fullu greitt, var DKK 13 milljónir. 


Jón Guðmann Pétursson, forstjóri Hampiðjunnar:

Cosmos er stærsta netaverkstæði Danmerkur með starfsstöðvar í Hirtshals og
Skagen.  Norsötrawl í Thyborön er næst stærsta netaverkstæði Danmerkur en 
Thyborön hefur verið vaxandi fiskihöfn á umliðnum árum og er ein af megin
fiskihöfnum Danmerkur.   Með netaverkstæði í Hirtshals, Skagen og nú í Thyborön
er staða Cosmos sterk á danska veiðarfæramarkaðnum. 

Þá erum við afar ánægð að fá Flemming Ruby, eiganda og stofnanda Nordsötrawl, í
lið með okkur.  Hann hefur verið frumkvöðull í þróun veiðarfæra fyrir
fjöltrollaveiðar þar sem skip dregur allt upp í tólf botntroll í einu. 
Flemming mun eiga 20% í félaginu og reka það áfram af sama myndarskap hér eftir
sem hingað til.