2015-08-05 16:51:18 CEST

2015-08-05 16:52:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 Borgartún - Fyrirtækjafréttir

LFEST1 10 1


Þann 12. júní sl. tilkynnti fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 Borgartún (kt.
610510-9810), hér eftir sjóðurinn, um að LF1 ehf. (kt. 640809-0350), hér eftir
lántaki, hafi þann sama dag tilkynnt sjóðnum um að hann muni nýta sér rétt til
uppgreiðslu skuldabréfaflokksins LFEST1 10 1.  Lántaki sjóðsins er í eigu
Landfesta ehf. (kt. 440805-0270) sem er í eigu Eik fasteignafélags hf. (kt.
590902-3730). 

Í framhaldi af framangreindri tilkynningu um fyrirhugaða uppgreiðslu á LFEST1
10 1 hafa forsvarsmenn sjóðsins og lántaka rætt saman um hugsanlegar
skilmálabreytingar á lánasamningi milli aðila.  Í samræmi við skilmála LFEST1
10 1 getur sjóðurinn ekki samþykkt skilmálabreytingar á lánasamningi í eigu
sjóðsins nema að fengnu samþykki eigenda skuldabréfaflokksins LFEST1 10 1. 

Lántaki hefur ráðið H.F. Verðbréf sem ráðgjafa vegna hugsanlegrar
skilmálabreytingar milli aðila. 



Frekari upplýsingar veitir Jón Finnbogason (jon.finnbogason@stefnir.is),
forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni hf.