|
|||
2021-05-06 13:04:54 CEST 2021-05-06 13:04:54 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarNiðurstaða úr skuldabréfaútboði ReykjavíkurborgarReykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokknum RVKN 24 1. Heildartilboð í RVKN 24 1 voru samtals 2.720 m.kr. að nafnvirði á bilinu 3,25% - 3,80%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.530 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,35%. Um nýjan skuldabréfaflokk er að ræða og er heildarstærð flokksins nú 1.530 m.kr. að nafnverði. Uppgjörsdagur er þriðjudaginn 11. maí 2021. Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu. Nánari upplýsingar veita: Helga Benediktsdóttir Hrafn Steinarsson
|
|||
|