|
|||
2009-08-05 16:43:39 CEST 2009-08-05 16:44:39 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir- Samningar um viðskiptavakt með skuldabréf Reykjavíkurborgar á eftirmarkaðiÞann 30. júlí 2009, skrifuðu MP Banki hf., Íslandsbanki og Saga Capital Fjárfestingarbanki hf., undir samninga við Reykjavíkurborg í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði með bréf Reykjavíkurborgar í flokki RVK 09 1. Tilgangur samningsins er að styrkja aðgang Reykjavíkurborgar að lánsfé og koma á virkri verðmyndum á eftirmarkaði með skuldarbréf Reykjavíkurborgar. Þann 6. ágúst 2009, munu MP Banki hf., Íslandsbanki og Saga Capital Fjárfestingarbanki hf., hefja viðskiptavakt með RVK 09 1. Meginatriði samningsins er eftirfarandi: 1. Viðskiptavaki skuldbindur sig til að setja fram kaup- og sölutilboð í NASDAQ OMX á Íslandi fyrir opnun markaðar í flokkinn RVK 09 1. 2. Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal vera að lágmarki 20 m.kr að nafnverði. Jafnframt er viðskiptavaka skylt að endurnýja tilboð sín í kauphöll innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. 3. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða viðskiptavaka ákvarðast af verði gildra tilboða og má mest vera 1,0%. 4. Eigi viðskiptavaki viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 100 m.kr. að nafnverði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja frá hámarksmun kaup- og sölutilboða það sem eftir lifir viðskiptadags. 5. Viðskiptavakar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Reykjavíkurborg veitir gegn tryggingu. Hver og einn viðskiptavaki á kost á að fá verðbréfalán að hámarki kr.65.000.000,- að nafnverði hverju sinni. f.h. Reykjavíkurborgar: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Sími: +354 411 3787 birgir.bjorn.sigurjonsson@reykjavik.is |
|||
|