|
|||
![]() |
|||
2012-03-20 09:30:00 CET 2012-03-20 09:31:45 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - ÁrsreikningurIslandsbanki hf. :Afkoma Íslandsbanka á árinu 2011Yfirlit yfir helstu niðurstöður: * Hagnaður ársins eftir skatta af reglulegri starfsemi var 13,9 milljarðar, samanborið við 17,8 milljarða árið 2010. Hagnaður ársins eftir skatta að teknu tilliti til einskiptisliða, s.s. væntra áhrifa gengislánadómsins og niðurfærslu á viðskiptavild, nam 1,9 milljörðum króna, samanborið við 29,4 milljarða 2010. * Á fjórða ársfjórðungi gætir áhrifa vegna virðisrýrnunar á viðskiptavild í kjölfar yfirtöku Byrs sem veldur einskiptiskostnaði upp á 17,9 milljarða króna. * Nettó gjaldfærsla vegna endurmats lánasafnsins nam 1,3 milljörðum króna, samanborið við 14,5 milljarða króna tekjufærslu á sama tímabil árið áður. Áætlaður kostnaður af dómi Hæstaréttar um vaxtareikning gengislána frá því í febrúar nemur 12,1 milljarði króna. Enn ríkir óvissa m.a. um fordæmisgildi dómsins og aðferð endurútreiknings. * Arðsemi eiginfjár af reglulegri starfsemi eftir skatta var 11,0% á ársgrundvelli. Sé tekið tillit til einskiptiskostnaðar var arðsemi eiginfjár 1,5%. * Um 17.600 einstaklingar og 2.700 fyrirtæki hafa fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum frá stofnun bankans sem nemur um 343 milljörðum króna. * Heildareignir námu 795.9 milljörðum króna við árslok, samanborið við 683,2 milljarða árið 2010. Hækkunin skýrist af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. * Heildarinnlán námu 525,8 milljörðum króna við árslok, samanborið við 423,4 milljarða árið 2010. * Stoðir undir fjármögnun voru styrktar þegar Íslandsbanki var fyrsti bankinn til að skrá sértryggð skuldabréf að upphæð 4 milljarða króna á NASDAQ OMX kauphöllinni á Íslandi. * Eigið fé nam 123,7 milljörðum við árslok og jókst um 2% á tímabilinu. Eiginfjárhlutfall var 22,6%, sem er töluvert umfram það 16% lágmark sem FME setur bankanum. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka"Árið 2011 var viðburðarríkt og mikilvægt í uppbyggingu Íslandsbanka. Sameining Íslandsbanka og Byrs var afar vel heppnuð. Með henni eykst markaðshlutdeild bankans og rekstur hans styrkist til framtíðar þar sem tekju- og samlegðaráhrif byrja að koma fram á þessu ári en skila sér svo af fullum þunga árið 2013. Þá var stórt skref stigið í uppbyggingu íslensks fjármálamarkaðar þegar Íslandsbanki varð fyrstur banka, frá haustinu 2008, til að gefa út sértryggð skuldabréf í Kauphöll Íslands. Hagnaður af reglulegum rekstri Íslandsbanka á árinu var viðunandi. Efnahagsreikningur bankans er traustur sem hefur gert okkur kleift að takast á við síbreytilegar forsendur í rekstrarumhverfinu. Eignir sem fluttust yfir til bankans við sameininguna við Byr hafa verið færðar niður sem og viðskiptavild tengd kaupunum til að takmarka óefnislegar eignir í efnahagsreikningi Íslandsbanka. Þá hefur einnig verið færð varúðarfærsla vegna nýfallins gengislánadóms Hæstaréttar, en ljóst er að hann hefur veruleg áhrif á afkomu bankans. Afar mikilvægt er að þeirri óvissu sem enn ríkir um gengislánamálin verði eytt sem allra fyrst. Við höfum lagt áherslu á að leysa úr málum viðskiptavina okkar með það fyrir augum að þeir standi eftir sem góðir viðskiptavinir. Sú viðleitni hefur skilað árangri en viðskiptavinir Íslandsbanka voru á síðasta ári ánægðustu viðskiptavinir fjármálafyrirtækja samkvæmt Ánægjuvoginni, og fyrir það erum við þakklát. Ég trúi því að árið 2012 verði ár viðsnúnings og að það verði árið sem erfiði síðustu þriggja ára fer að skila sér." Í meðfylgjandi viðhengjum má finna afkomutilkynninguna í fullri lengd og ársreikning bankans. Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187. Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, gudny.helga.herbertsdottir@islandsbanki.is og í síma 440 3678. [HUG#1595645] |
|||
|