|
|||
2011-08-19 13:45:50 CEST 2011-08-19 13:46:51 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 13 0517 og RIKB 16 1013 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 13 0517: Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 1.005 m.kr. að nafnverði. Öllum tilboðum var hafnað. RIKB 16 1013: Alls bárust 12 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.550 m.kr. að nafnverði. 8 tilboðum var tekið fyrir 2.100 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,700 (5,16% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 23. ágúst. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 24. ágúst 2011. |
|||
|