2013-01-18 17:40:52 CET

2013-01-18 17:41:52 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Ríkisútvarpið - Fyrirtækjafréttir

Stafræn sjónvarpsdreifing RÚV


Ríkiskaup, f.h. Ríkisútvarpsins tilkynnti í dag, föstudaginn 18. janúar 2013 um
að ákveðið hafi verið að velja tilboð frá Fjarskiptum ehf. (Vodafone) í útboði
nr. 15233 um stafræna sjónvarpsdreifingu, enda tilboðið metið hagstæðast fyrir
kaupanda samkvæmt matslíkani útboðslýsingar 

Þegar um er að ræða innkaupaferli sem lýkur með vali kaupanda á tilboði skulu
líða a.m.k. 10 dagar frá því að ákvörðun um val tilboðs er tilkynnt þar til
tilboð er endanlega samþykkt, sbr. 76. gr. laga 84/2007. Að loknum þessum
a.m.k. 10 dögum og að öllu óbreyttu, geta Ríkiskaup f.h. Ríkisútvarpsins
samþykkt endanlega tilboð Fjarskipta. 

Verði gerður samningur við Fjarskipti ehf. á gundvelli þessa tilboðs er gert
ráð fyrir að það hafi ekki áhrif á heildarafkomu Ríkisútvarpsins.