2017-10-02 14:14:31 CEST

2017-10-02 14:14:31 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lýsing hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lýsing hf: Skuldabréfaútboð 5. október 2017


Lýsing  hf.  efnir  til  útboðs  á  skuldabréfum  fimmtudaginn  þann  5. október
næstkomandi.  Boðin verða til sölu skuldabréf  í flokkunum LYSING 16 og 1 LYSING
17 1. Báðir  flokkar eru  tryggðir með  veði í  útlánum og fjármögnunarsamningum
Lýsingar og hafa báðir verið teknir til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

LYSING  16 1 er  óverðtryggður  flokkur  sem  ber  fljótandi  vexti (1M REIBOR +
1,10%) og greiðir jafnar mánaðarlegar greiðslur. Lokagjalddagi flokksins er 16.
október 2023. Áður útgefin skuldabréf í flokknum eru að nafnverði 3.020.000.000
kr.  LYSING 16 1 verður boðinn  út á föstu  verði, 100,00 (pari), sem jafngildir
5,85% ávöxtunarkröfu miðað við núverandi eins mánaða REIBOR sem er 4,60%.

LYSING  17 1 er verðtryggður tæplega 7 ára flokkur  sem ber fasta 3,95% vexti og
greiðir  jafnar árlegar greiðslur. Lokagjalddagi flokksins er 15. maí 2024. Áður
útgefin  skuldabréf í flokknum  eru að nafnverði  3.460.000.000 kr. LYSING 17 1
verður  boðinn  út  á  fastri  ávöxtunarkröfu 3,85% sem samsvarar hreina verðinu
100,32.

Markaðsviðskipti Arctica Finance hf. hefur umsjón með útboðinu. Skuldabréfin eru
gefin út í 10 m.kr. einingum og verða skráð í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt
til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum.

Útboðið  er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. 1. mgr., 1. tl. a og b, 50.
greinar   laga   nr.  108/2007 um  verðbréfaviðskipti.  Grunnlýsing,  endanlegir
skilmálar  og önnur skjöl er  varða útgáfu framangreinds flokks skuldaskjala eru
birt á vefsíðu félagsins, www.lysing.is/lysing/starfsemin/fjarfestatengsl/

Nánari upplýsingar veita:
Daði  Kristjánsson, markaðsviðskiptum  Arctica Finance  hf., dadi@arctica.is, s:
840 4145
Arnar  Geir Sæmundsson, markaðsviðskiptum Arctica Finance hf., arnar@arctica.is,
s: 896 6566
Sighvatur   Sigfússon,  fjármálastjóri  Lýsingar  hf.,  sighvatur@lysing.is,  s:
540 1700

[]