2017-10-04 14:08:30 CEST

2017-10-04 14:08:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr viðbótarútgáfu


Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS151155 og LSS150434 þann 3. október 2017. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 5. október 2017.

Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. 

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.910.000.000 á bilinu 2,55% - 2,80%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.010.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,69%. Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS151155 fyrir ISK 100.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,69% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS151155 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 1.110.000.000.  Heildarstærð flokksins er nú ISK 4.947.000.000.

Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.040.000.000 á bilinu 2,53% - 2,59%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 840.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,58%.  Að þessu sinni óskuðu aðalmiðlarar eftir að nýta sér kauprétt fyrir viðbót í LSS150434 fyrir ISK 64.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,58% og hefur Lánasjóðurinn ákveðið að verða við þeim óskum. Heildarmagn seldra bréfa í útboðinu í LSS150434 að meðtaldri viðbótarútgáfunni er ISK 904.000.000.  Heildarstærð flokksins er nú ISK 26.333.352.565

Nánari upplýsingar veitir:
Örvar Þór Ólafsson
Sími: 515 4947
T-póstur: orvar@lanasjodur.is