|
|||
![]() |
|||
2017-10-04 18:27:04 CEST 2017-10-04 18:27:04 CEST REGULATED INFORMATION Skeljungur hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumSkeljungur: Þórður Guðjónsson ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Skeljungs.Þórður Guðjónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Skeljungs. Þórður hefur verið forstöðumaður viðskiptastýringar og sölu hjá fyrirtækjaþjónustu Símans frá árinu 2014. Áður gegndi hann stöðu viðskiptastjóra lykilviðskiptavina Símans. Þórður var jafnframt knattspyrnu- og framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA um árabil. Þórður er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði, frá árinu 2010, auk þess sem hann hefur lokið námi í markþjálfun. Þá hefur Þórður verið virkur í félagsstörfum fyrir Akraneskaupstað. Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs: Það er mikill fengur fyrir Skeljung að fá Þórð til starfa. Með Þórði fær Skeljungur til liðs við sig öflugan stjórnanda, sem sýnir sig í þeim árangri sem hann hefur náð sem forstöðumaður fyrirtækjaþjónustu Símans. Við teljum að reynsla hans af utanumhaldi um viðskiptavini og sölu á fyrirtækjamarkaði muni nýtast Skeljungi afar vel og koma viðskiptavinum félagsins til góða. Nánari upplýsingar veitir Hendrik Egholm, forstjóri, s: 840-3007, fjarfestar@skeljungur.is. [] |
|||
|