2017-10-04 18:36:54 CEST

2017-10-04 18:36:54 CEST


REGULATED INFORMATION

English
FAST-1 slhf. - Other information disclosed according to the rules of the Exchange

FAST-1 slhf. - Söluferli á eignum FAST-1 slhf.


Stjórn FAST-1 hefur ákveðið að bjóða til sölu eignasafn félagsins. Um er að ræða
Katrínartún  2 og  Borgartún  8-16, ásamt  Skúlagötu  21, Vegmúla  3 og hluta af
Skútuvogi  1. Samtals er eignasafnið um 44 þúsund fermetrar. Fasteignirnar eru í
tveimur  dótturfélögum  Fast-1; HTO  ehf.  (Katrínartún  2 og Borgartún 8-16) og
Fast-2 ehf. (Skúlagata 21, Vegmúli 3 og hluti af Skútuvogi 1).

Gert er ráð fyrir að fjárfestar skili tilboðum í félögin fyrir lok október 2017.

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur umsjón með söluferlinu. Fjárfestar geta
nálgast upplýsingar um skilyrði til þátttöku í söluferlinu, sölugögn og aðrar
upplýsingar í gegnum netfangið fast1@islandsbanki.is. 

[]