|
|||
2012-01-17 17:50:18 CET 2012-01-17 17:51:19 CET REGULATED INFORMATION Landsvaki - FyrirtækjafréttirAfskráning Markaðsbréfa Landsbankans – stuttraStjórn Landsvaka hf., rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingasjóða Landsbankans, hefur tekið ákvörðun um samruna verðbréfasjóðsins Markaðsbréfa Landsbankans - stuttra við verðbréfasjóðinn Markaðsbréf Landsbankans - löng. Samruninn er framkvæmdur með hagsmuni hlutdeildarskírteinishafa að leiðarljósi. Aðstæður fyrir blandaðan skuldabréfasjóð (sjóður sem fjárfestir í ríkisskuldabréfum, skuldabréfum sveitarfélaga, fjármálafyrirtækja og annarra fyrirtækja) með stuttan líftíma eins og Markaðsbréf Landsbankans-stutt eru ekki góðar vegna lítils framboðs og fer samruninn fram í því ljósi. Hlutdeildarskírteinishafar sjóðsins munu þann 26. janúar næstkomandi fá bréf þar sem samruninn verður nánar kynntur. Samruninn fer fram þann 16. febrúar næstkomandi með flutningi allra verðbréfa í eigu Markaðsbréfa Landsbankans -stuttra í Markaðsbréf Landsbankans - löng. Eign hlutdeildarskírteinishafa verður flutt sjálfkrafa yfir í Markaðsbréf Landsbankans löng og enginn kostnaður fellur á hlutdeildarskírteinishafa við þessa aðgerð. Beiðni um afskráningu sjóðsins Markaðsbréfa Landsbankans - stuttra hefur verið send Kauphöll. Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Landsvaka hf. Ari Skúlason í síma 410-7406 |
|||
|