|
|||
2024-07-25 17:50:00 CEST 2024-07-25 17:50:08 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Afkoma Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2024Hagnaður Arion banka á öðrum ársfjórðungi 2024 nam 5,5 milljörðum króna. Fundur og vefstreymi fyrir markaðsaðila 26. júlí kl. 8:30 Lykiltölur á öðrum ársfjórðungi 2024
Lykiltölur fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2024
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka Eitt af því sem hafði áhrif á arðsemi fjórðungsins er sátt sem bankinn gerði við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands undir lok annars ársfjórðungs þar sem bankinn féllst á að greiða sekt að upphæð 585 milljónir króna. Hefði ekki komið til þessarar sáttargreiðslu þá hefði arðsemi bankans á fjórðungnum numið 12,7%. Sáttin við fjármálaeftirlitið var gerð í kjölfar könnunar eftirlitsins sem fram fór sumarið 2022 og sneri að aðgerðum bankans gegn peningaþvætti. Í könnun fjármálaeftirlitsins komu í ljós annmarkar á framkvæmd bankans og var athugasemdum strax tekið alvarlega og ráðist í allsherjar endurskoðun á framkvæmdinni. Við höfum nú styrkt til muna þá þætti í starfseminni sem snúa að hlutverki okkar í vörnum gegn peningaþvætti með því meðal annars að efla okkar kerfi og fjölga því starfsfólki sem sinnir þessu mikilvæga hlutverki. Arion banki hefur verið leiðandi þegar kemur að fyrirtækjaráðgjöf hér á landi síðustu ár og á öðrum ársfjórðungi var bankinn ráðgefandi í einu kauphallarskráningu það sem af er ári þegar Kaldvík var skráð á First North markaðinn. Arion banki er jafnframt ráðgjafi JBT í yfirtökutilboði félagsins í hlutafé Marel. Er óhætt að fullyrða að nái áform JBT fram að ganga þá verði um einhver stærstu viðskipti síðasta áratugar hér á landi að ræða. Áhersla okkar á traustan rekstur og framúrskarandi fjármálaþjónustu þar sem þægileg stafræn þjónusta er í forgrunni hefur leitt til þess að Arion banki hefur verið valinn banki ársins hér á landi síðustu þrjú ár af fjármálatímaritinu The Banker sem er gefið út af The Financial Times. Nýlega valdi svo tímaritið Euromoney Arion sem banka ársins 2024 á Íslandi og jafnframt besta stafræna banka landsins. Segja má að þetta sé í samræmi við niðurstöður könnunar Maskínu sem birtar voru í júní og sýna að viðskiptavinir bankanna telja Arion appið besta bankaappið hér á landi, áttunda árið í röð. Við erum þakklát fyrir þessa jákvæðu endurgjöf og nýtum hana sem hvatningu til að gera enn betur. Við höfum lagt mikla áherslu á að vera leiðandi þegar kemur að stafrænni þjónustu eins og sést vel á þeirri fjölbreyttu þjónustu sem er viðskiptavinum aðgengileg í Arion appinu. Þar fæst með einföldum hætti yfirsýn yfir allt sem tengist fjármálum; svo sem kortareikninga, sparnað, tryggingar, lífeyrissparnað og verðbréfaeign. Nýjustu viðbæturnar eru annars vegar það sem við köllum Arion fjölskylda, en þar geta forráðamenn sjálfkrafa fengið sýn á reikninga barna sinna og deilt sýn á eigin fjármál með maka, og hins vegar Arion endurgreiðsla, sem gefur þeim viðskiptavinum Arion banka sem eru í viðskiptum við Vörð kost á 5% endurgreiðslu tryggingaiðgjalda ef þeir eiga tjónlaust ár. Arion banki vinnur áfram að þróun Arnarlandsins í Garðabæ og Blikastaðalandsins í Mosfellsbæ. Í undirbúningi er uppbygging fjölbreyttrar íbúabyggðar ásamt tengdri þjónustu. Arion banki á 51% í Arnarlandinu þar sem gert er ráð fyrir að reisa um 500 íbúðir og um 30 þúsund fermetra af atvinnu- og verslunarhúsnæði. Blikastaðalandið er alfarið í eigu bankans og er um 100 hektarar að stærð. Fyrsti áfangi verkefnisins gerir ráð fyrir uppbyggingu um 1.200 íbúða á um 30-35 hekturum og uppbyggingu innviða eins og skóla og leikskóla. Bæði þessi verkefni eru unnin í góðu samstarfi við sveitarfélögin og munu auka framboð íbúðahúsnæðis á næstu árum.” Fundur / vefstreymi fyrir markaðsaðila 26. júlí kl. 8:30 Hægt verður að nálgast streymið á Lumiconnect og á fjárfestatengslavef bankans. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur í gegnum spjallþráð á sömu síðu. Spurningum verður svarað að loknum kynningum. Fjárhagsdagatal |
|||
|