2011-12-30 14:48:52 CET

2011-12-30 14:49:53 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Landsvirkjun semur um sambankalán í íslenskum krónum


Landsvirkjun skrifaði í dag undir sambankalán í íslenskum krónum til þriggja
ára að fjárhæð 10,5 milljarðar króna.  Lánið er veltilán og getur fyrirtækið
dregið á lánið og endurgreitt eftir þörfum.  Lánið er með framlengingarheimild
til tveggja ára og getur lánstími því að hámarki orðið fimm ár. 

Um lántökuna sáu Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn.

Sambankalánið er viðbót við annað sambankalán að fjárhæð 200 milljónir
Bandaríkjadala sem tilkynnt var þann 27. desember síðastliðinn.  Markmið
lántakanna er að Landsvirkjun hafi ávallt tryggan aðgang að fyrirvaralausri
fjármögnun ef hefðbundnar fjármögnunarleiðir lokast tímabundið.  Með lántökunum
hefur Landsvirkjun þannig samtals tryggt sér fjármögnun að jafnvirði um 35
milljarða króna til allt að 5 ára. 



Reykjavík, 30. desember 2011

Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,
í síma 515-9010, netfang: rafnar@lv.is