2013-11-20 10:39:44 CET

2013-11-20 10:40:43 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fjárhagsdagatal

Islandsbanki hf. : Afkoma fyrir 3. ársfjórðung birt þann 27. nóvember


Íslandsbanki mun birta afkomu 3. ársfjórðungs 2013 fyrir opnun markaða
miðvikudaginn 27. nóvember 2013.

Síðar þann dag kl. 13.00 mun bankinn bjóða markaðsaðilum upp á símafund.
Fundurinn fer fram á ensku og farið verður yfir helstu atriði í íslenskum
efnahagsmálum og afkomu bankans.

Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is.
Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2
tímum fyrir fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla,
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér:
http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.



Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1744481]