|
|||
2010-02-22 11:02:21 CET 2010-02-22 11:03:22 CET REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - Niðurstöður hluthafafundaNiðurstöður aðalfundar, sem haldinn var 19. febrúar 2010Niðurstöður aðalfundar Nýherja, sem haldinn var í ráðstefnusal félagsins að Borgartúni 37, kl. 16.00, þann 19. febrúar 2010: 1. Ársreikningur félagsins var lagður fram og samþykktur samhljóða. 2. Samþykkt var tillaga stjórnar að ekki verði greiddur arður vegna rekstrarársins 2009. 3. Samþykkt var tillaga um stjórnarlaun fyrir starfsárið 2009: Stjórnarformaður kr. 2.550.000, stjórnarmenn kr. 850.000 og varamaður kr. 63.000 fyrir hvern fund. 4. Samþykkt var eftirfarandi breyting á grein 2.1. samþykkta félagins. Í lok greinarinnar komi svohljóðandi bráðabirgðaákvæði: Stjórn félagsins er heimilt sbr. 41. gr. hlutafélagalaga, að auka hlutafé félagsins um allt að kr. 120 millj. með sölu nýrra hluta. Falla núverandi hluthafar frá forkaupsrétti sínum til kaupa á hlutum þessum. Stjórn félagsins ákveður útboðsgengi bréfanna og sölureglur hverju sinni. Skal áskrift fara fram samkvæmt ákvæðum samþykkta félagsins og V. kafla hlutafélagalaga. Engar hömlur skulu vera á viðskiptum með hina nýju hluti. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Heimild þessa getur stjórn Nýherja nýtt innan þriggja ára frá samþykkt hennar 5. Samþykkt var heimild til handa stjórn félagsins til að kaupa allt að 10% af nafnverði hlutafjár félagsins, sbr. VIII. kafla laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Kaupgengi hluta má ekki vera meira en 20% hærra eða lægra en síðasta skráða gengi á Kauphöll Íslands. Gildistími heimildarinnar er allt að átján mánuðir. 6. Samþykkt var að eftirtaldir skipi stjórn fyrir næsta starfsár: Benedikt Jóhannesson, Árni Vilhjálmsson og Guðmundur Jóh. Jónsson. Samþykkt var að varamaður verði Jafet S. Ólafsson. 7. Samþykkt var að endurskoðendur félagsins verði KPMG Endurskoðun hf. Ný stjórn skipti með sér verkum á stjórnarfundi, sem haldinn var í framhaldi aðalfundar. Benedikt Jóhannesson gegnir stöðu stjórnarformanns. Árni Vilhjálmsson var kjörinn varaformaður. Meðfylgjandi er ræða formanns í viðhengi. |
|||
|