2015-05-21 17:46:40 CEST

2015-05-21 17:47:40 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Hluthafafundir

Aðalfundur Haga hf. 4. júní 2015


Endanleg dagskrá og tillögur.

Samkvæmt samþykktum Haga hf. skal tveimur vikum fyrir aðalfund birta dagskrá,
endanlegar tillögur, svo og ársreikning, skýrslu stjórnar og skýrslu
endurskoðenda, auk tillagna félagsstjórnar um starfskjarastefnu. 

Dagskrá og tillögur vegna aðalfundar 2015 eru óbreyttar frá fyrri tilkynningu
félagsins þann 13. maí sl. 

Hluthöfum er þó bent á að óski þeir eftir að fá mál sett á dagskrá eða leggja
fram ályktunartillögur á fundinum þarf að beina því skriflega og í endanlegu
formi til félagsstjórnar eigi síðar en 10 dögum fyrir fund (mánudaginn 25. maí
nk.) á netfangið adalfundur@hagar.is, eins og kveðið er á um í 1. og 2. mgr.
86. gr. hlutafélagalaga, sbr. lög nr. 2/1995. Kann endurskoðuð dagskrá að
birtast þann dag. 

Hluthöfum er einnig bent á að hægt er að tilkynna um framboð til stjórnar
skriflega skemmst 5 dögum fyrir aðalfund. Upplýsingar um frambjóðendur til
stjórnar verða tilkynntar eigi síðar en 2 dögum fyrir fund. 



                                Stjórn Haga hf.