|
|||
2013-02-18 10:04:21 CET 2013-02-18 10:05:22 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - ÁrsreikningurMoody‘s breytir horfum á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr neikvæðum í stöðugarMatsfyrirtækið Moody's hefur breytt horfum á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar úr neikvæðum í stöðugar. Samsvarandi breyting á horfum átti sér stað hjá Ríkissjóði Íslands þann 7. febrúar síðastliðinn. Að mati Moody´s endurspeglar breytingin að það hafi dregið úr óvissu sem fylgdi úrskurði EFTA-dómstólsins í janúar síðastliðinn og almennt bættar efnahagshorfur á Íslandi. Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515-9000, netfang: rafnar@lv.is. |
|||
|