|
|||
2008-06-20 04:05:34 CEST 2008-06-20 04:06:31 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Hf. Eimskipafélag Íslands - ÁrsreikningurEimskip tapar 101 milljón evra á öðrum ársfjórðungi- Skýrist af afskrift eignarhluts í Innovate og háum fjármagnsliðum- - Vöxtur í tekjum og EBITDA framlegð í samræmi við væntingar- - Rekstrarafkoma á flutningastarfsemi félagsins er samkvæmt áætlun- - Starfsemi Versacold Atlas samkvæmt áætlun- Helstu atriði úr uppgjörinu: Heildartekjur á öðrum ársfjórðungi námu 379,9 milljónum evra (2F 2007: 259,6 milljónir evra), sem er 46,3% tekjuaukning á milli ára. Undirliggjandi vöxtur samstæðunnar er 7,7% á fjórðungnum. Góður árangur náðist í flutningastarfsemi félagsins í Rússlandi, Eystrasalti, Norður Atlantshafi, Íslandi og Norður-Ameríku. Auk þess er rekstur Versacold Atlas í takt við áætlanir. Afskrift á eignarhlut Innovate nema 71 milljón evra afskrift og í umfjöllun um uppgjörið eru áhrif af þeirri starfsemi aðskilin. Starfsemi Eimskips skiptist í tvær meginstoðir; flutningastarfsemi (sjóflutningar og tengdir flutningar) og hinsvegar rekstur kæli- og frystigeymslna. Helstu atriði úr uppgjöri annars ársfjórðungs eru eftirfarandi: •Tekjur af flutningastarfsemi námu 153,5 milljónum evra á 2F og tekjur af rekstri kæli og frystigeymslna námu 226,0 milljónum evra á fjórðungnum. •Rekstrargjöld á öðrum fjórðungi námu 370,5 milljónum evra. •Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) nam 40,0 milljónum evra á fjórðungnum, eða 10,5% framlegð. •Heildarfjármagnskostnaður er 52,5 milljónir evra á 2F, þar af nemur gengistap um 19,7 milljónum evra. •Tap eftir skatta var 100,8 milljón evra á 2F samanborið við 9,8 milljóna evra tap á 2F 2007. Tap án tillits til afskriftar Innovate er 32,9 milljónir evra. •Stjórn Eimskips metur ýmsa valkosti sem tengjast Versacold Atlas, með það að markmiði að gera verðmæti þess félags sýnilegra og að lækka skuldastöðu samstæðunnar verulega á næstu mánuðum. Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, um uppgjörið: „Tekjur og framlegð á öðrum ársfjórðungi eru í samræmi við okkar væntingar og ánægjulegt er að sjá góðan árangur í flutningastarfsemi í Rússlandi, Eystrasalti, Norður-Atlantshafssvæðinu, Íslandi og Norður-Ameríku. Auk þess erum við áfram að sjá góðan rekstur Versacold Atlas. Framtíðarhorfur í rekstri félagsins eru góðar. Flutningastarfsemin er byggð á mjög traustum grunni sem stefnt er að efla enn frekar með innri vexti, og hagræðingu. Þrátt fyrir góðan undirliggjandi rekstur í okkar kjarnastarfsemi hefur afskrift á eignarhlut í Innovate veruleg áhrif á afkomu Eimskips, auk þess sem fjármagnsliðir eru áfram háir. Stjórn félagsins hefur sett sér það markmið að styrkja eiginfjárhlutfall félagsins fyrir lok ársins og að það verði að minnsta kosti 25%. Í framhaldinu verður góður undirliggjandi rekstur samstæðunnar sýnilegri og fjármagnskostnaður mun lækka.“ |
|||
|