|
|||
2013-08-30 00:45:08 CEST 2013-08-30 00:46:08 CEST REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - ÁrsreikningurEimskip kynnir afkomu annars ársfjórðungs og áætlaða afkomu 2013-- Rekstrartekjur hækkuðu um 1,2% á milli ára og námu 108,1 milljón evra -- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, var 9,8 milljónir evra -- Eiginfjárhlutfall var 63,9% í lok júní -- Flutningsmagn í áætlanasiglingum á Norður Atlantshafi jókst um 2,0% á milli ára -- Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 5,4% á milli ára -- Áætluð EBITDA fyrir árið 2013 er á bilinu 36 til 40 milljónir evra Gylfi Sigfússon, forstjóri „Efnahagsástandið á Íslandi var krefjandi á öðrum ársfjórðungi. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands hefur orðið 4,8% samdráttur í innfluttu magni til landsins og 0,5% samdráttur í útflutningi fyrstu sex mánuði ársins. Flutningsmagn í áætlanasiglingum Eimskips jókst um 2,0% á öðrum ársfjórðungi samanborið við annan ársfjórðung 2012, en vöxtur hefur verið í flutningum í Færeyjum, í Noregi og í flutningum á milli Evrópu og Norður-Ameríku á meðan samdráttur hefur verið í innflutningi til Íslands. Magn í alþjóðlegri flutningsmiðlun á öðrum ársfjórðungi jókst um 5,4% í samanburði við fyrra ár. Rekstrartekjur félagsins námu 108,1 milljón evra og EBITDA var 9,8 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2013. Samdráttur í innflutningi til landsins og viðbótarkostnaður við fjölgun um eitt skip í nýju siglingakerfi félagsins höfðu neikvæð áhrif á afkomuna. Í marsmánuði kynnti Eimskip umfangsmiklar breytingar á siglingakerfi félagsins með það fyrir augum að styrkja stöðu sína fyrir framtíðarvöxt félagsins. Breytingarnar skapa ný tækifæri fyrir viðskiptavini félagsins og opna félaginu nýjar leiðir til tekjuöflunar. Með breytingunum var bætt við vikulegum strandsiglingum á Íslandi, nýjum viðkomuhöfnum í Færeyjum, Skotlandi, Póllandi og í Bandaríkjunum, auk þess sem afkastageta kerfisins var aukin um 7,7%. Strandsiglingarnar hafa gefið okkur tækifæri til að auka hagkvæmni í innanlandskerfinu okkar með því að draga úr fjölda flutningabifreiða í rekstri. Aukin þjónusta við Færeyjar með því að koma við á þrem höfnum hefur leitt til aukinna flutninga. Eimskip hefur nú á að skipa öflugasta gámaflutningakerfi á heimamarkaði sínum á Norður-Atlantshafi. Félagið mun halda áfram leggja áherslu á að markaðssetja og selja nýja siglingakerfið. Fastur kostnaður jókst við það að bæta skipi við siglingakerfið og afleiðingar þess sjást á öðrum ársfjórðungi þar sem það tekur tíma að auka flutningsmagnið og tekjurnar á móti auknum kostnaði. Breytingarnar á kerfinu hafa lækkað EBITDA um sem nemur um 0,8 milljónum evra á öðrum ársfjórðungi samanborið við síðasta ár. Samdráttur í flutningum til Íslands hefur einnig haft neikvæð áhrif á EBITDA samanborið við fyrra ár. Það er mikilvægt bæði fyrir íslenskt efnahagslíf og fyrir Eimskip að fjárfestingarverkefni á Íslandi fari af stað, að lausn verði fundin á skuldavanda heimila og fyrirtækja og að ásættanleg lausn náist í tengslum við fjármagnshöftin. Þótt staða efnahagslífsins á Íslandi sé enn veik þá eru flutningar Eimskips til Íslands á fyrstu sex vikum þriðja ársfjórðungs að sýna sambærilegt magn og á sama tímabili á síðasta ári. Byggt á spám okkar um þróun markaðarins á árinu áætlum við að EBITDA félagsins verði á bilinu 36 til 40 milljónir evra á árinu. Eimskip leggur áfram sérstaka áherslu á uppbyggingu á Norður-Atlantshafi í tengslum við möguleg verkefni tengd sjávarútvegi og fiskeldi, stóriðju, olíu og námuvinnslu, ásamt hafnarþjónustu og annarri tengdri þjónustu. Félagið fylgist einnig með og metur möguleg tækifæri tengd Norðurheimsskautssiglingum framtíðarinnar.“ Frekari upplýsingar -- Gylfi Sigfússon, forstjóri, sími: 525 7202 -- Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202 -- Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: investors@eimskip.is |
|||
|