2008-10-08 22:50:36 CEST

2008-10-08 22:51:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsbanki Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Fitch lækkar lánshæfismatseinkunn Landsbankans í D / D / F



Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur í dag lækkað
lánshæfismatseinkunn langtímaskuldbindinga Landsbankans í 'D' úr 'B'
, einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga
bankans í 'D' úr 'B' og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk staðfest
sem 'F'. Lánshæfismatseinkunnir bankans eru á ekki lengur á
athugunarlista.

Langtímaskuldbindingar dótturfélags bankans í Bretlandi, Landsbanki
Heritable Bank, voru einnig lækkaðir í 'D' úr 'BB', einkunnir vegna
innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans sem 'D' úr  'B'
og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk lækkuð í 'F' frá 'D'.
Lánshæfismatseinkunnir bankans eru ekki lengur á athugunarlista.

Nánari rökstuðning Fitch má finna í fréttatilkynningu hér
meðfylgjandi.

Frekari upplýsingar veitir Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri
Alþjóðasviðs í s. 820-6340.