|
|||
![]() |
|||
2017-02-28 17:51:12 CET 2017-02-28 17:51:12 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarIslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.860 m.kr. Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 19 var stækkaður um 160 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,33%. Heildartilboð voru 200 m.kr. á bilinu 5,28% - 5,37%. Heildarstærð flokksins verður 9.520 m.kr. eftir útgáfuna. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var stækkaður um 1.420 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,25%. Heildartilboð voru 1.420 m.kr. á bilinu 3,20% - 3,25%. Heildarstærð flokksins verður 8.260 m.kr. eftir útgáfuna. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 240 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,05%. Heildartilboð voru 240 m.kr. á bilinu 3,00% - 3,05%. Heildarstærð flokksins verður 19.880 m.kr. eftir útgáfuna. Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 7. febrúar næstkomandi. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 67.780 m.kr. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|