|
|||
2011-12-13 12:47:09 CET 2011-12-13 12:48:11 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0315 OG RIKV 12 0615Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0315 og RIKV 12 0615 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 12 0315: Alls bárust 15 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 11.412 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 3.947 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,270 (flatir vextir 2,91%). RIKV 12 0615: Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.300 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 500 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,545 (flatir vextir 2,91%). |
|||
|