2009-08-31 16:10:01 CEST

2009-08-31 16:11:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landsvaki - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2009


Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði
Landsbankans, hefur staðfest árshlutauppgjör félagsins fyrir fyrstu 6 mánuði
ársins 2009.  Á fyrri hluta ársins annaðist Landsvaki hf. rekstur 26 sjóða um
sameiginlega fjárfestingu samanborið við 30 sjóði á sama tímabili 2008 en á
tímabilinu voru stofnaðir 2 nýjir sjóðir og 2 sjóðum var slitið.  Í lok
tímabilsins nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 44,3 milljörðum króna. 

Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi.

•  Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
   ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning
   verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða.  Þessi framsetning á
   reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga
   verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. 

•  Ársreikningurinn hefur verið kannaður af KPMG sem telur ekkert benda til þess
   að reikningurinn gefi ekki glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á
   fyrstu sex mánuðum ársins 2009, efnahag þess 30. júní 2009 og breytingu á
   handbæru fé og hreinni eign sjóðanna, í samræmi við lög og settar  
   reikningsskilareglur. 


Þær aðstæður sem sköpuðust á íslenskum fjármálamarkaðia við fall bankanna í
byrjun október 2008 hafa haft mikil áhrif á rekstrarumhverfi félagsins og
orsakað að heildareignir í stýringu hafa minnkað verulega. 

Hagnaður varð á rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 96,9 milljónir króna
samkvæmt rekstrarreikningi félagsins.  Eigið fé Landsvaka þann 30.6.2009 nam
238,6 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.  Eiginfjárhlutfall félagsins,
reiknað samkvæmt ákvæðum 84.gr. laga um fjármálafyrirtæki, nam 44,9%. 

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veitir Ari Skúlason,
framkvæmdastjóri Landsvaka í síma 410 7406