2012-11-21 13:19:12 CET

2012-11-21 13:20:13 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Dómur fallinn í kröfu þrb. Norðurturnsins ehf. gegn Eignarhaldsfélaginu Smáralind ehf.


Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. sýknað af kröfum

Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hefur verið sýknað af kröfum þrotabús
Norðurturnsins með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í dag 21.11.2012. 

Skiptastjóri þrotabús Norðurturnsins ehf., fyrrum systurfélags
Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. stefndi Eignarhaldsfélaginu Smáralind
ehf. til greiðslu kröfu að fjárhæð 1.300.000.000 kr. með dráttarvöxtum frá og
með 30. mars 2009 til greiðsludags, byggt á því að Eignarhaldsfélagið Smáralind
ehf. hafi undirgengist skuldbindingu um að leggja til þá fjármuni til byggingar
fasteignar við Smáralind, svokallaðs Norðurturns. 

Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. hafnaði þeirri kröfu um að félaginu bæri að
greiða hluta byggingakostnaðar á þeirri forsendu að engar samþykktir finnist í
gögnum félagsins fyrir þáttöku í byggingakostnaðinum, með dómnum er það viðhorf
 staðfest. Ekki liggur fyrir hvort málinu verður áfrýjað. 

Þess ber að geta að í tengslum við skráningu Regins hf. á markað sl. vor þá gaf
Landsbankinn hf. út skaðleysisyfirlýsingu til handa Eignarhaldsfélagi
Smáralindar ehf., dótturfélagi Regins hf., vegna  dómsmálsins, þannig að
niðurstaða þess hefði engin áhrif á félagið, þar sem Landsbankinn hf. myndi
taka yfir greiðsluskyldu gagnvart stefnanda ef til hennar kæmi. 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins

Sími: 512 8900 / 899 6262