2015-03-06 09:17:54 CET

2015-03-06 09:18:55 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska
Garðabær - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Garðabæjar


Garðabær, í samstarfi við Markaði Íslandsbanka, hélt á föstudaginn 27. febrúar
síðastliðinn útboð á skuldabréfum í stækkuðum skuldabréfaflokki
sveitarfélagsins, GARD 13 1. 



Alls bárust tilboð að nafnverði kr. 920.000.000 með ávöxtunarkröfu á bilinu
2,90% til 3,45%. Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var í dag var samþykkt að
taka tilboðum að nafnverði kr. 330.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,04%.
Útistandandi voru fyrir að nafnverði kr. 1.437.000.000 og verður heildarstærð
flokksins því nú að nafnverði kr. 1.767.000.000. 



Gert er ráð fyrir að nýútgefin skuldabréf verði tekin til viðskipta í Kauphöll
Íslands fimmtudaginn 12. mars nk.